Search
Saturday, September 04, 2010 ..:: Múlakot 2005 ::..   Login
 Múlakot Verslunarmannahelgin Minimize

Múlakotshátíðin 2005

 

Fjölskyldu-flugkoma Flugmálafélags Íslands í Múlakoti 30.júlí - 1.ágúst 2005

Yfirlit

Fjölskyldu-flugkoma Flugmálafélags Íslands verður í Múlakoti í Fljótshlíð um Verslunarmannahelgina 2005.

Flugvöllurinn  í Múlakoti er sunnan við þjóðveginn í Fljótshlíðinni (F-261).

 

Flugkoman er ætluð flugmönnum, flugáhugamönnum í öllum tegundum flugs ásamt fjölskyldum þeirra eins og verið hefur undanfarin 21 ár.

Engin formleg dagskrá verður í gangi, en menn skemmta sér og öðrum í leikjum og flugi.

Flugkoman er góð viðbót við útihátíðirnar um Verslunarmannahelgina fyrir fjölskyldur.

 

Þeir sem koma fljúgandi geta lent á flugvellinum og geymt vélarnar á afgirtum stæðum á vellinum.

 

Sjoppa verður á svæðinu með gos, sælgæti og annað góðgæti. Löng hefð er fyrir sameiginlegu grilli á laugardagskvöldið gegn vægu gjaldi.

 

Enginn aðgangseyrir er á flugkomuna. Salerni eru á tjaldsvæðinu.

Tjaldstæði kostar 1.500 kr  fyrir hverja fjölskyldu fyrir helgina.

Tjaldsvæðið

Tjaldsvæði fyrir gesti á flugkomunni er vestast á svæðinu, vestan flugskýlisins. Þar verða afmörkuð svæði fyrir þá hópa sem vilja vera saman og merkja sitt svæði sérstaklega.

Umsjón

Flugmálafélag Íslands er skipuleggjandi flugkomunnar. Flugkoman hefur verið árlegur viðburður síðustu 21 árin. Flugmálafélag Íslands var stofnað 1936 og er regnhlífarsamtök félagasamtaka í flugtengum íþróttum. Þar má nefna Vélflug, Svifflug, Svifdrekaflug, Fisflug, Listflug, Fallhlífarstökk, Módelflug, Heimasmíði og fleiri greinar.

 


  

 Umferðarreglur Múlakoti 2005 Minimize

Múlakot 2005 - Umferðarreglur

  • Flugmenn á leið til eða frá Múlakoti skulu kalla á 118.1 Mhz 5 NM frá Múlakoti eða við Hvolsvöll eða Stóra Dímon eftir því sem við á.
  • Umferðarhringur er sunnan við braut í Múlakoti.
  • Aldrei má fljúga norðan brautar í grennd við Múlakot.
  • Æskilegt er að flugvélar sem hyggjast fljúga yfir svæðið séu í 2000 fetum eða ofar.
  • Listflugsvæði verður í afmörkuðu boxi sunnan brautar.
  • Þegar flugatriði svo sem listflug, fallhlífastökk eða önnur flugatriði eru í gangi er æskilegt að aðrar flugvélar halda sig utan við 3 NM frá vellinum. 
  • Flugmenn skulu fylgja flugreglum og sýna öðru flugi og umhverfinu tillitsemi í flugi sínu.
  • Ekki skal fljúga yfir tjaldstæði undir 1000 fetum.
  • Flugáætlanir skulu lagðar inn til flugumferðarþjónustu, nema þegar um er að ræða flug í næsta nágrenni Múlakots þá skal leggja inn flugáætlun til umsjónaraðila Múlakotshátíðarinnar sem ber þá ábyrgð á viðbúnaðarþjónustu.
  • Flugmenn eru minntir á að loka flugáætlunum sínum til að forðast álag við leit að þeim.

  

Flugmálafélag Íslands   Terms Of Use  Privacy Statement